Top Waves kynnir: Glæsilegt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum stórum bílskúr á góðum stað á Akranesi
Húsið er fallegt að utan sem innan. Húsið er með fjögur herbergi, tvö baðherbergi, alrými með stofur og rúmgott eldhús. Bílskúr er 40fm.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu með rúmgóðum fataskáp. Við tekur gangur með tengingu við herbergin. Í annan enda gangsins er hol sem nýtist sem sjónvarpshol og í hinum endanum er stofa og eldhús. Steinteppi á gólfum
Eldhús er með fallega innréttingu og eyju. Útgengi á verönd og opið rými inn í stofu og borðstofu. Steinteppi á gólfum.
Stofa er björt og með plastparket á gólfi, opið rými við borðstofu og eldhús.
Fjögur svefnherbergi, öll með plastparket á gólfum.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og hluta veggja, baðkar, sturtu, upphengt salerni og stóra innréttingu, mjög rúmgott baðherbergi.
Þvottahús er með flísar á gólfi, útgang til austurs og inngang í bílskúr.
Bílskúr er rúmgóður með flísum á gólfi, inngöngudyr til vesturs og geymsluloft. Gestasalerni með sturtuklefa. Hægt að nýta sem leigueiningu eða aukaherbergi.
Húsið er byggt með forsteyptum einingum, hátt til lofts, gólfhiti og varmaskiptir.
Features
Nánari upplýsingar
Leið 57 ( Akranes-Reykjavík ) er í 3 mínútna göngufjarlægð.
Gott útivistarsvæði og golfvöllur í göngufjarlægð.
Map
Seljuskógar, Akranes, Ísland